4.4.06
Ertu þá farin? Ertu þá farin af netinu?
jamms..am doing a Harpa and an Auður...
viljiði póstkort?
annars er ég farin í LÁNGT frí...
toodles, og heyrumst í gegnum venjulegar leiðir í framtíðinni...
Posted at 11:44 pm by sigrundora
Permalink
3.4.06
Það er á stundum sem þessum sem maður verður hvað brjálaðastur út í sjálfa sig, þegar andleysið nær að festa klónum í mann svo svakalega að ekkert gengur né rekur...gvuð hvað maður verður pirraður á sjálfum sér og langar til að hafa þá hæfileika sem þarf til að sparka í rassgatið á sjálfum sér...annars er ég mjög stolt af sjálfri mér með að vera komin svona langt, því að þetta er það mesta sem ég hef nokkurntímann skrifað...samt er það ekki nóg...ég verð að skrifa meira....
vika í brottför og ég er að fyllast kvíða...ég er soldið hrædd...en ég veit að um leið og ég kemst á áfangastað bun allt breytast til batnaðar...
keypti nýja og flotta digitalvél hjá Lilju á laugardaginn...mmmm...me love it soooo much...
wanna go to Moravia....wahhhhh
Posted at 02:19 pm by sigrundora
Permalink
30.3.06
jæja, búin að fá smá frest hjá Jay, og er komin með næstum 2000 orð...búin að panta nokkrar TH greinar í gegnum millisafnalán hjá LBS/HBS...svo verða næstu fjórir dagar lagðir í skrif...en ætla að anda smá í kvöld og fara á bíó með HF...svo á lau ætlum við stelpurnar í vinnunni kannski að fara út að borða og svo á "Date Movie", þannig að þetta verður ekki allt saman "all work and no play"
fékk póst frá nemendaskrá um styrk...sem er ekki í frásögur færandi nema að þetta er styrkurinn sem Bjarki er á...jamms til Japan...langar soldið...en alls ekki alveg strax...svo myndi mig langa meira til Ástralíu...til Marissu...en, ég vil ekki vera að hugsa um skóla núna...ætla í frí næsta skólaár og vil ekki hugsa um mig í námi fyrr en árið þar á eftir...
styttist í ferðina...ætla að vera að búin að skrifa á fimmtudaginn, svo ég geti nú noað föstudaginn í að snúast í ferðamálum...eins og að kaupa gjaldeyri og svoleiðis....
Posted at 02:03 pm by sigrundora
Permalink